Hektor-Brúno Sun Feb 01, 2009 6:43 pm
Ég vill þakka öllum fyrir FRÁBÆRANN DAG mikið var nú gaman að sjá svona marga og fengum við nú líka þetta flotta veður
Held ég fari með rétt mál þegar ég segi að við höfum verið 10 hundar saman 9 Boxer.
Svo þegar allir voru farnir þá fengum við smá óvæntan glaðning. Fyrst þá kom hann Baron hann er sko 13ára kallinn ekkert smá flottur með sín gráu hár.
Hann varr ekki mikið fyrir að leika við strákana stóð bara og horfði bara á ungu strákana leika sér hehe.
Svo þegar hann var að keyra í burtu þá komu Salka og Funi á svæðið og voru með okkur í þó nokkra stund svaka stuð hjá öllum og svo endaði þetta með að hann Nobel 7 mánaða mætti á svæðið þvílíkt hissa að hitta alla þessa Boxera haha.
Þannig að þetta endaði með að vera 13 Boxer hundar sem mættu á svæðið á mismunandi tíma. Allveg frábært
Ég Ásdís og strákarnir vorum komin heim kl 17 þannig að þeir löbbuðu bara beint á dýnuna sýna og lögðust niður og eru búnir að vera þar haha uppgefnir.
Þangað til næst